OPENEAR Lento þráðlaus heyrnartól með hljóðnema, Bluetooth 5.3 og IPX5 vatnsvörn

Stílhrein, þægileg og lauflétt (10g) OpenEar Lento þráðlaus heyrnartól með Bluetooth 5.3, hljóðnema, IPX5 vatnsvörn og HD „crystal-clear“ símtöl. Þú getur hlustað á tónlist, rætt við vinnufélaga og heyrt í umhverfinu í kringum þig án þess að missa athygli og fórna hljómgæðum. Það tekur aðeins 1,5 klst að fullhlaða heyrnartólin og 2 klst að fullhlaða hleðsluboxið.

Mjög góð samhæfni og hröð tenging við alla helstu snjallsíma og spjaldtölvur. Þú stjórnar afspilun, hækkar, lækkar, svarar, kveikir og slekkur á heyrnatólunum. Það er upplagt að nota heyrnartólin í vinnunni, göngutúrnum eða í sófanum heima þegar horft er á sjónvarpið.

– Sjá myndband af vöru neðar á síðu
– Litur: Svartur
– Þyngd: 10g hvort tæki fyrir sig
– Efni: ABS+PC
– Bluetooth 5.3 (allt að 10m drægni)
– Rafhlöðuending: 4,5 klst hlustun
– Vatnsvörn: IPX5
– Hleðslusnúra: USB-A í USB-C tengi fylgir með
– Leiðbeiningar
– Vottun: CE og ROHS

Vörunúmer: OPENEAR-LENTO Vöruflokkur: , Vörumerki: