Kids OpenEar þráðlaus heyrnartól fyrir börn, BT 5.3 og IPX4 vatnsvörn
Eingöngu fyrirtæki í viðskiptum geta skráð sig inn og pantað.Stílhrein OpenEar þráðlaus heyrnartól fyrir börn. Heyrnartólin henta einstaklega vel til að hlusta á tónlist í síma, spjaldtölvu eða til horfa á sjónvarpið. Heyrnartólin eru OpenEar sem gerir það að verkum að þau hylja hvorki eyrun né tappar settir í þau sbr. airpods. Börnin geta hlustað á tónlist eða talað í símann og heyrt í umferðinni á sama tíma sem eykur öryggi þeirra til muna. Þá geta þau tekið þátt í samræðum hvort sem þau eru heima eða úti að ganga eða hjóla.
Heyrartólin eru með bluetooth 5.3 og 10 metra drægni og eru ekki nema 18 grömm. Rafhlaðan dugar í 4-5 klst í spilun í 80% hljóðstyrk og 5 klst í tal. Með þessum frábæru heyrnartólum getur barnið horft á sjónvarpið eða spjaldtölvu án þess að trufla foreldrana, en á sama tíma heyrir barnið í foreldrum án þess að þurfa að taka af sér heyrnartólin. USB-A í USB-C hleðslusnúra og leiðbeiningar fylgja með.
– Litur: Bleikur og blár
– Þráðlaus beinleiðni heyrnartól fyrir krakka
– Vatns/rykheldni: IPX-4
– Bluetooth: 5.3
– Þyngd 18 grömm
– Vottun: CE, ROHS og FCC



