Þráðlaus Clip-On heyrnartól með ENC, IPX4 vatnsvörn, Dual connections, BT 5,4
Eingöngu fyrirtæki í viðskiptum geta skráð sig inn og pantað.Öflug þráðlaus heyrnartól sem koma skemmtilega á óvart og þú finnur lítið sem ekkert fyrir þrátt fyrir langa notkun. Heyrnartólin eru lauflétt eða aðeins 4,9 grömm hvort um sig. AI ENC Noise Cancellation“ sem virkar þannig að sá sem þú ert að tala við heyrir minna af umhverfishljóðum í kringum þig auk þess sem röddin þín verður skýrari á meðan þú talar í símann.
Heyrnartólin eru með frábærum hljómgæðum hvort sem þú hlustar á tónlist, sjónvarp, hljóðbækur eða spilar tölvuleiki. Mjög góð samhæfni í gegnum Bluetooth 5,4 og hröð tenging við snjallsíma og önnur bluetooth tæki. Þú getur hlustað á tónlist, rætt við vinnufélaga og heyrt í umhverfinu í kringum þig án þess að missa athygli og fórna hljómgæðum.
Það fylgir App með tækinu sem hægt er að niðurhala í snjallsímann. Í appinu er hægt að uppfæra heyrnartólin, sýna á korti hvar þau voru notuð seinast og látið heyrnartólin gefa frá sér hljóð ef þú finnur þau ekki heima. Það er hægt að stilla í appi hvað gerist þegar þú smellir tvisvar sinnum eða þrisvar sinnum á hvort tæki fyrir sig. Þú getur t.d. látið tækið fara á pásu/kveikja á tónlist, næsta lag, hækka og lækka með því að smella á hægra eða vinstra heyrnartólið. Í appinu er hægt að stilla hvort þú vilt nota „Power Rock“, Clear Vocals, Pop Music, Treble Boost eða Lounge Jazz þegar þú ert að hlusta á tónlist.
Heyrnartólin eru með „Dual Connection“ sem þýðir að þú getur verið tengdur við tvö bluetooth tæki samtímis. Þú getur t.d. hlustað á tónlist í tölvunni en um leið og síminn hringir þá tekur hann yfir og þú getur svarað í símann. Þú getur notað heyrnartólin í vinnunni, ræktinni, göngutúrnum eða heima til að hlusta á hljóðbók, tónlist, horfa á sjónvarpið eða spila tölvuleiki. Heyrnartólin detta ekki af eyranu þegar þú notar hlaupabretti eða ert úti að skokka.
– Sjá myndband af vöru neðar á síðu
– Litur: Grár
– Þyngd: Aðeins 4,9 grömm hvort tæki
– Efni: ABS+PC
– Bluetooth 5.4
– Rafhlöðuending: 6 klst hlustun á einni hleðslu – allt að 25 klst með hleðsluboxi
– AI ENC Noise Cancellation“
– IPX4 vatnsvörn – þolir svita og rigningu
– Vottun: CE og ROHS
Varan inniheldur:
2x Open Ear þráðlaus heyrnartól
1x hleðslubox
1x UBS-C hleðslusnúra
Leiðbeiningar á ensku fylgja með
















