Eftirfarandi aðilar hafa skilað inn umsögn um fyrirtækið:
RÖNNING
„Rönning hefur átt í samstarfi við föðurlandið í þónokkurn tíma og hefur undirritaður ekkert nema gott um stofuna að segja. Allt efni sem borist hefur frá þeim er fagmannlega unnið og allar óskir okkar hafa verið virtar. Tímarammar hafa staðist og önnur þjónusta, t.d. útvegun á gluggamerkingum, merkingar í búðirnar og fl. hefur allt verið útvegað og séð um upp í topp. Föðurlandið fær mín bestu meðmæli.
Mbk Ragnar Hermannsson
Rekstrarstjóri Rönning Heimilistækja“