Auglýsingastofan Föðurlandið hefur verið starfrækt síðan árið 2006 og var hún stofnuð af Arnari Fells og Örvari Þóri Sigurðssyni. Þeir skipuðu sér fljótt sess á auglýsingamarkaði með góðum og snöggum vinnubrögðum eins skemmtilegum uppástungum fyrir viðskiptavini Föðurlandsins td. með að framleiða lengstu auglýsingu Íslandssögunnar. Hún var gerð árið 2006 fyrir veitinga og skemmtistaðinn Oliver og var sú auglýsing mjög skemmtilega unnin. Hægt er að sjá auglýsinguna á síðunni hér. Rekstur Föðurlandsins hefur gengið mjög vel frá byrjun og er megin áhersla Föðurlandsins að sinna viðskiptavinum Föðurlandsins vel.
Í byrjun árs 2011 keyptu Árni Sigurjónsson og Erling Valur Ingason rekstur Föðurlandsins og reka saman í dag. Báðir aðilar hafa mikla reynslu þegar kemur að markaðssetningu í miðlum og gerð auglýsinga.
Föðurlandið er auglýsingastofa sem sérhæfir sig á mörgum sviðum td:
Heildarhönnun vörumerkis, fyrirtækis.
Heimasíðugerð
Auglýsingagerð (Blaða, útvarps, sjónvarps)
Hönnum á bæklingum og borðum,
Alhliða merkingum (glugga, bíla, o.s.frv).
Hýsingar á vefjum
Ásamt mörgu öðru sem við sinnum, það eru til lausnir.
Föðurlandið er og verður alltaf þjóðlegasta auglýsingastofa landsins.